Lágkúran grunnur að hámenningu?

Hér má hlusta á umfjöllun um Dorotheu Tanning, skapara þessa skúlptúrs.
Upphafið að íslenskri menningarpólitík, dans dans dans og ástin á tímum fésbókarinnar.
Sá skattur sem dreginn var af lágmenningu og lágkúru á fyrri hluta síðustu aldar var nýttur til að leggja grunninn að helstu menningarstofnunum þjóðarinnar. Í Víðsjá í dag verður rætt við Ólaf Rastrik sagnfræðing um upphafið að íslenskri menningarpólitík. Ennfremur verður fjallað um verkið Mínus 16 sem íslenski dansflokkurinn frumsýndi um helgina, en verkið er eftir Ohad Haharin og hefur farið sigurför um heiminn. Rætt verður um höfundarétt á netinu við Kristínu Atladóttur menningarhagfræðing, en hún stýrði á dögunum málþingi þessu tengt sem Bandalag íslenskra listamanna hélt. Salka Guðmundsdóttir leiklistargagnrýnandi fjallar um sýningarnar Ég er vindurinn og Skrímslið litla systir mín. Sagt verður frá „síðasta súrrealistanum“, Dorotheu Tanning, sem lést í New York í síðustu viku, 101 árs að aldri. Í EBU-horni hljómar tónlist frá Tallin, eftir Arvo Pärt og Felix Mendelssohn og svamlað verður um í fiskabúri fésbókarinnar, þar sem ástin hefur skotið rótum, á tímum sem krefjast ALGJÖRS gegnsæis á ÖLLUM sviðum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






