Lærði Kastró af Jón Múla og Jónasi?

Mynd frá 1959 af Jóni Múla, Jónasi Árnasyni og Lárusi Pálssyni við uppfærslu á Deleríum Búbónis í Iðnó 1959.
Þegar Fidel Kastró á Kúbu, ákvað í desember 1969, að fresta jólunum til að bjarga sykuruppskeru landsins, runnu tvær grímur á marga Íslendinga. Því þessa hugmynd áttu upphaflega bræðurnir Jón Múli og Jónas Árnasynir.
Það var engu líkara en Kastró hefði heyrt af hinni geysivinsælu jóla- og bílnúmerarevíu þeirra bræðra DELERÍUM BÚBÓNIS.
Gamansöngleikurinn DELERÍUM BÚBÓNIS fjallaði einmitt um fyrirhugaða frestun á jólum til að bjarga valdamanni úr kröggum og varð gamanleikurinn strax feyknavinsæll.
Þeir bræður endurskrifuðu síðan leikinn fyrir svið, stækkuðu og juku á ýmsa lund, og þannig birtist hann síðan leikhúsgestum í gömlu Iðnó árið 1959. Síðan fór hann sem eldur um sinu um öll leikhús landsins.
Frumgerðin hefur varðveist í safni Útvarpsleikhússins og verður flutt á Leikritakvöldi útvarpsins, laugardagskvöldið 17. desember um kl. 20, eða að loknum þættinum "Þau stóðu í sviðsljósinu: Indriði Waage, leikari og leikstjóri", sem verður fluttur kl. 19:00.
Margir af ástsælustu leikurum þjóðarinnar um og uppúr miðri síðustu öld, fara með hlutverkin: Haraldur Björnsson, Emilía Jónasdóttir, Kristín Anna Þórarinsdóttir, Þorsteinn Ö. Stephensen, Lárus Pálsson og Nína Sveinsdóttir.
Tónlistarstjórn annaðist Carl Billih og hljóðfæraleik Karl Lillendahl. Einar Pálsson var leikstjóri.
Í verkinu segir af Ægi Ó. Ægis, forstjóra Gleðilegra jóla hf., sem hyggst flytja inn jólatré og ávexti fyrir jólin. Óvænt atvik setur strik í reikninginn og vart annað hægt að gera en að fresta jólum fram í mars.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






