Kínverjar sækja á í Afríku

Skiptar skoðanir á því hverjir hagnist á samskiptum Kínverja og Afríkubúa

Kínverjar verða sífellt áhrifameiri í Afríku en umsvif þeirra í álfunni hafa vaxið hratt á undanförnum árum. Áhugi Kínverja beinist að náttúruauðlyndum Afríku. Kínverjar hafa mikla þörf fyrir olíu, gas og málma sem nóg er af í álfunni. Margir Afríkbúar fagna auknum fjárfestinum Kínverja, aðrir tala um innrás. Umsvif Kínverja í Afríku eru ekki síst gagnrýnd á Vesturlöndum. Spegillinn ræðir við Jónínu Einarsdóttur mannfræðing um málið sem segir margar flökkusögur einkenna umræðuna. Hún segir að ný barátta um Afríku sé framundan og athyglisvert verði að fylgjast með því hvernig Afríkubúar nýti sér hana.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku