John Williams áttræður

John Williams hefur samið tónlist við ógrynni kvikmynda. Flestir geta raulað allavega eitt stef eftir hann.

Kvikmyndatónskáldið John Williams verður áttræður 8. febrúar næstkomandi. Af því tilefni verður Kvika helguð honum.

Leikin verður tónlist úr nokkrum þeirra kvikmynda sem hann hefur samið tónlist við, svo sem Stjörnustríðsmyndunum, Júragarðinum og Indiana Jones.

John Williams er þrátt fyrir háan aldur enn að störfum og tilnefndur til óskarsverðlauna fyrir tónlist við tvær nýjustu myndir Spielbergs, War Horse og Ævintýri Tinna.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku