Ísland sjálfbært um eldsneyti

Vörubíll á leið með sykurrey í verksmiðju sem framleiðir lífrænt eldsneyti úr honum. Kólumbía.


  • Prenta
  • Senda frétt

Með framleiðslu lífræn eldsneytis, væri hægt að framleiða allt það eldsneyti sem Íslendingar þurfa, ef frá er skilið millilandaflug.

Þetta segir Guðmundur Gunnarsson, fagstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Raforka og ný tækni skipta lykilmáli. Með svokölluðu efnasmíðagasi, mætti auka nýtingu lífræns efnis um allt að hundrað prósent - tvöfalda það eldsneyti sem fæst úr lífmassanum. Til að framleiða nógu mikið af eldsneyti fyrir íslensk skip og bíla, þyrfti um milljón tonn af lífrænu efni í framleiðsluna. Því væri nauðsynlegt að rækta mikið magn af repju, grasi eða trjám.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku