Hraun, Bretland, tóbak og kvenskörungar

Í þættinum á laugardaginn er fjallað um hraun og eðli þeirra, spennandi gönguferð í Bretlandi, tóbaksdósir Tryggva Gunnarssonar og konur sem settu svip á bæinn á 18. öld, þar á meðal Þorbjörgu Sveinsdóttur ljósmóður.

Við höldum í jarðfræðiferð út á  Reykjanesskaga og fræðumst um eðli hrauna. Hraun eru þung og seigfljótandi og því erfitt að stoppa þau en það tókst þó í Vestmannaeyjagosinu. A Reykjanesskaga  eru bæði slétt hraun, svokölluð helluhraun sem eru auðveld yfirferðar, og úfin og óaðgengileg hraun sem nefnast apalhraun.

Af Reykjanesinu liggur leiðin til Bretlands. Það er fjöldinn allur af stuttum og löngum gönguleiðum í Bretlandi og eru þær lengstu á annað þúsund kílómetrar.  Ein þessara þjóðleiða eins og þær eru kallaðar eða „National trails“ er  Cotwoldsway sem liggur frá  markaðsbænum Chipping Campden í norðri til Bath í suðri . Við heyrum í hressum göngumanni.

Þá er haldið á Þjóðminjasafnið til að skoða grip mánaðarins sem að þessu sinni tengist sýningunni  “Þetta er allt sama tóbakið” sem nú stendur yfir á annarri hæð safnsins. Um er að ræða tóbaksdósir Tryggva Gunnarssonar.  Við fræðumst um þær og sitt hvað sem tengist sögu tóbaksins hér á landi .

Að lokum er staldrað við í miðbænum  og fræðst um konur sem settu svip á bæinn á 18.öld og haldið upp á  Skólavörðustíg en þar bjó Þorbjörg Sveinsdóttir ljósmóðir sem lét mjög að sér kveða í bæjarmálunum á sinni tíð  hún var mjög óvenjuleg kona og hafði til að bera karakter og styrk til að brjóta á bak aftur þær reglur sem konum voru settar  í hennar tíð.

Við byrjum á spurningu dagsins og beinum athyglinni að Ölfusá og spyrjum. Hversu löng er áin, hvaða tvær ár mynda hana og hvaðan koma þær? Þá er spurt. Hversu margar brýr eru á ánni? Hvenær var fyrst byggð brú yfir hana, hvernig fór fyrir henni og hversu gamlar eru núverandi brýr?

                                                                                                                             

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku