Hótel eru af hinu góða

Austurvöllur verður áfram almannarými, segir formaður Skipulagsráðs.
Hótelum er alltaf vel við haldið, það er ekki reyndin með byggingar ríkisins til dæmis, segir formaður skipulagsrráðs Reykjavíkur.
Hótel spretta upp eins og gorkúlur í miðborg Reykjavíkur þessi misserin. Leigubílstjórarnir sem Spegilsmaður ekur stundum með eru samhljóða í kvarti sínu undan langferðabílum sem teppi alla eðlilega umferð um miðborgina. Það ástand á víst eftir að versna eftir að hótel verður byggt í gamla Landsímahúsinu við Austurvöll. Og svo sprettur upp stórt hótel við Hörpu. Íbúasamtök Miðborgarinnar mótmæla fyrirhuguðum byggingaframkvæmdum við Ingólfstorg. Krafan er að skipulagið verði endurskoðað með hagsmuni íbúa og almennings að leiðarljósi í stað þess að áhersla sé enn einu sinni lögð á að mæta fjárhagslegum hagsmunum lóðarhafa, segir í ályktun stjórnar íbúasamtakanna sem fjallað var um í Speglinum á þriðjudaginn var. Páll Hjaltason arkitekt, formaður Skipulagsráðs Reykjavíkur er á annarri skoðun. Hótel, segir hann, er einmitt af hinu góða. Hótel eru alltaf í góðu standi, þeim er vel við haldið. Hótelið sem verður við Austurvöll verður fyrir almenning í þeim skilningi að neðsta hæðin verður fyrir verslanir og veitingahús. Austurvöllur verður áfram almenningssvæði. Rætt verður við Pál Hjaltason í Spegli dagsins.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













