Getur hert á snúningi jarðar?

Jökull
Svo getur farið að jörðin herði á snúningi sínum og dagarnir styttist ef allir jöklar heimsins bráðna og yfirborð sjávar hækkar um 70 metra eins og allt bendir til að gerist á næstu öldum, segir jöklafræðingur.í þættinum verður einnig fjallað um Bráðnun jökla, X Ísland, illa umgengni við jarðminjar
Ef svo ferð að yfirborð sjávar hækkar um 70 metra munu flestar núverandi mannabyggðir fara á kaf.
Hann er búinn að ganga frá Reykjanesi á Font og lagður af stað frá Hornströndum á Hornafjörð. Þeirri göngu ætlar hann að ljúka á árinu, það er fyrir næstu kosningar. Þá hefur hann gengið í x yfir landið og þar með kosið Ísland.
Laus jarðefni í námunda við þéttbýli eru að verða af skornum skammti og gengið er á friðaða gerfigíga. Slíkir gígar eru sjaldæfir á heimsvísu og þeim hefur verið líkt við sambærilegar myndanir á Mars. Umgengni við jarðminjar og friðuð svæði er of víða slæm og eftirlit alls ekki nógu öflugt, segir jarðfræðingur.
Tjörnin í Reykjavík er manngerð og hún er eins og hver annar garður sem þarf að hlúa að og rækta. Ræktunarstarf og mótun tjarnarsvæðisins hófst þegar árið 1920 þegar þangað voru fluttar álftir. Fram að því voru fuglarnir á Tjörninni hafðir til matar. við fræðumst um fuglana á Tjörninni.
Við byrjum að vanda á spurningu dagsins og spyrjum um Grímsey: Hversu stór er eyjan að flatarmáli og hve langt er hún frá landi? Hvaða íþrótt hefur borið hróður eyjarskeggja víða og hve margir eru íbúarnir?
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






