Fyrsta íslenska atvinnuleikskáldið

Edda Björg og Guðmundur Ingi í hlutverkum sínum í Fjalla-Eyvindi

Um hann hefur ávallt leikið nokkur dulúð. Ungur hélt hann utan til að læra að verða dýralæknir, en áður en hann fengi lokið því námi hafði skáldskapurinn náð tökum á honum og hann ákvað að reyna fyrir sér sem leikritahöfundur.

Var það að renna blint í sjóinn og gegn allri skynsemi enda engin fordæmi fyrir slíku. Skáldið var Jóhann Sigurjónsson (1880-1919). En Jóhanni tókst hið ómögulega. Strax með öðru leikritinu sem hann skrifaði á dönsku, Rung lækni, vakti hann töluverða athygli.

Fékkst það útgefið hjá Gyldendal forlaginu og þó að leikhúsin sýndu því tómlæti var það eitt og sér töluverður heiður að fá það útgefið á bók.

En það var svo með leikritinu Fjalla-Eyvindur sem kom út árið 1911 að frægðarsól Jóhanns fór að skína fyrir alvöru. Var leikritið frumsýnt á Íslandi það sama ár og árið eftir í Kaupmannahöfn. Hlaut það nánast einróma lof allra og í kjölfarið var leikritið tekið til sýningar út um öll Norðurlönd og víðar í Evrópu við góðar undirtektir.

Í tilefni þessara tímamóta, að öld er liðin nú á jólum frá því að FJALLA-EYVINDUR var frumfluttur á Íslandi, mun Útvarpsleikhúsið minnast höfundarins með ýmsu móti nú um hátíðarnar.

Fimmtudagskvöldin 15. og 22. desember kl. 22:20 á Rás 1, verður flutt dagskrá í tveim hlutum, sem nefnist eftir upphafslínu úr einu ljóða skáldsins: Væri ég aðeins einn af þessum fáu. Umsjónarmaður er Þórhallur Sigurðsson og flytjendur eru leikararnir Anna Kristín Arngrímsdóttir, Helga Bachmann, Helgi Skúlason og Arnar Jónsson.

Á nýársdag kl. 14:00 mun Útvarpsleikhúsið frumflytja nýja útvarpsleikgerð á FJALLA-EYVINDI eftir Mörtu Nordal og í leikstjórn hennar. Þar sem kastljósinu er beint eingöngu að höfuðpersónum leikritsins. Leikendur eru: Edda Björg Eyjólfsdóttir (Halla), Guðmundur Ingi Þorvaldsson (Kári), Bjartur Guðmundsson (Arnes) og Valdimar Örn Flygenring (Björn hreppsstjóri).

Sunnudaginn 8. janúar verður síðan flutt ein allra elsta upptaka Útvarpsleikhússins, frá árinu 1947. Þar er það annað þekktasta leikrit Jóhanns Sigurjónssonar: GALDRA-LOFTUR, í leikstjórn Haraldar Björnssonar. Galdra-Loftur er leikinn af Lárusi Pálssyni, Steinunn er Soffía Guðlaugsdóttir, Dísa er leikin af Bryndísi Pétursdóttur og Ólafur af Róberti Arnfinnssyni.

Fimmtudagskvöldin 29. desember og 5. janúar kl. 22:20 bæði kvöldin, verður flutt tveggja þátta röð um leikritið Galdra-Loft. Heita þættirnir Þar sem bjarminn ljómar. Umsjónarmaður er Jórunn Sigurðardóttir.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku