Evrukreppan fimm ára

Mynd: Shutterstock


  • Prenta
  • Senda frétt

Í dag eru fimm ár frá því að Evrópski seðlabankinn tilkynnti að lausafé á markaðnum yrði aukið, vegna tímabundins lausafjárskorts.

Þeir sem fylgjast með evrópskum fjármálamörkuðum tóku eftir því í ágúst 2007 að fé flaut inn í banka en ekki út úr þeim. Það var lausafjárþurrð sem Evrópski seðlabankinn mætti að morgni níunda ágúst fyrir fimm árum með því að útleysa tæplega 100 milljarða evra á markaðinn. Eftir viðbót síðar um daginn var upphæðin orðin tæplega 160 milljarðar evra. Á nokkrum dögum var 230 milljörðum dælt út. Sama var gert í Bandaríkjunum. Þetta voru viðbrögð við fréttum um að tap af svokölluðum undirmálslánum væri að koma upp á yfirborðið. Á fimm árum hefur lausafjárkreppa breyst í kreppu í nokkrum Evrópulöndum þegar ríki hafa bjargað bankakerfum án þess að ráða almennilega við það.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku