Ekkert samkomulag um Sýrland

Rússar hóta að beita neitunarvaldi í Öryggisráðinu
Rússland hefur ekki látið við það sitja að styðja Assad í samningaumleitunum innan Öryggisráðsins. Nýlega seldi Rússland stjórn Assads hergögn, orrustuþotur og eldflaugar fyrir fjóra milljarða dollara. Lavrov utanríkisráðherra sagði í gær að áframhald muni verða á þessum viðskiptum. Lavrov sagði að sérstaklega hefði verið samið um að þessum vopnum yrði ekki beitt gegn mótmælendum. Náið samband Rússlands og Sýrlands á rætur að rekja aftur til tíma Sovétríkjanna sálugu, en í dag snýst það um að rússnesk stórfyrirtæki hafa fjárfest fyrir miklar upphæðir í Sýrlandi og eiga þar mikilla hagsmuna að gæta. Þá er höfnin í Tartus í Sýrlandi afar mikilvæg og raunar meginhöfn Miðjarðarhafsflota Rússlands. Fjallað er um stöðuna í Sýrlandi í Speglinum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






