Eftirlaunaaldur í 75 ár?

Forsætisráðherra Svíþjóðar varpar sprengju inn í þjóðmálaumræðuna
Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar tekur á morgun á móti forsætisráðherrum, Norðurlandanna, Eystrasaltsríkjanna og forsætisráðherra Bretlands, David Cameroon. Forsætisráðherrarnir hittast í Stokkhólmi til skrafs og ráðagerða, en það var Cameroon sem fyrsta boðaði til fundar af þessu tagi í janúar í fyrra. Breski forsætisráðherrann sagði þá að tilgangurinn væri að kalla saman á einum stað fulltrúum norður evrópksra ríkja og ræða þar sem sameiginleg vandamál og skiptast á hugmyndum. Reinfeldt ætlar að gefa starfssystkinum sínum eitthvað til að hugsa um og melta á fundinum í morgun, en hann hyggst kynna þar hugmyndir sínar um að hækka eftirlaunaaldur um heil tíu ár. Fátt er meira rætt í sænskum fjölmiðlum í dag en hugmyndir Reinfeldts, sem hann raunar hefur ekki mótað till fullnustu en kastar fram til umræðu.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






