Ef evran hrynur



  • Prenta
  • Senda frétt

Ný skýrsla um afleiðingar af hruni evrunnar vekur athygli.

Það er ekki lengur fjarlægur möguleiki að evran sem sameiginleg mynt Evrópusambandsríkja líði undir lok. Rætt er í fyllstu alvöru meðal stjórnmálamanna og í fjármálaheiminum að svo kunni að fara. Tveir möguleikar eru einkum ræddir. Sá fyrri er að Grikkland, Portúgal, Spánn, Ítalía og Kýpur yfirgefi evruna og taki upp eigin myntir í stað. Löndin hverfi aftur til drökmunnar. pesosins og þar fram eftir götum. Annar möguleiki sem nú er ræddur í fyllstu alvöru, er að evrusamstarfið líði undir lok. Hvert evruríki um sig taki upp eigin gjaldmiðil á nýjan leik. Nú hefur verið birt skýrsla sérfræðinga í Þýskalandi um efnahagslegar afleiðingar þess. Niðurstöðurnar eru hrollvekjandi. Fjallað er um mögulegt hrun evrunnar og afleiðingar þess í Speglinum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku