Álftirnar héldu tjörninni í heljargreipum

Álftirnar sem voru settar á tjörnina 1920 voru mjög skæðar og oftar en einu sinni var börnum bjargað undan steggjum sem voru að verja óðöl sín. Auk álftanna verður fjallað um stjörnuskoðun, landið helga og Smiðshús í Árbæjarsafni í þættinum í dag

Álftirnar sem voru settar á Tjörnina 1920 urðu mjög kræfar og réðust á fólk. Að lokum voru álftirnar sendar sem vinabæjargjöf til Hamborgar og þaðan fékk Reykjavík hnúðsvani í staðinn. En þá beinum við sjónum okkar til himins.

Undanfarin ár hefur áhugi landans á stjörnufræði aukist verulega. Kemur þar ýmislegt til svo sem markviss útbreiðslustarfsemi Stjörnuskoðunarfélagsins, stjörnufræðiþættir í sjónvarpi og einstæðar myndir frá Hubble sjónaukanum og ekki síst stjörnufræðiforrit sem hægt er að hlaða niður í símann sinn. Þá liggur leiðin að botni Miðjarðarhafs.

Kristnir menn þekkja ýmis örnefni í landinu helga sem tengjast mikilvægum atburðum í Biblíunni. Fjárhirðarnir voru á Betlehemsvöllum, í Getsemanegarðinum við rætur Ólífufjallsins sveik Júdas Krist og svo framvegis. Þeir eru því margir sem fýsir að líta þessa staði augum. Við heyrum af því.

Að lokum er það Árbæjarsafn en á næstu mánuðum munum við beina athyglinni að fjölbreyttu starfi minjasafns Reykjavíkur sem rekur safnið. Nú hugum við að tveimur húsum sem verið er að endurgera. Smiðshús er tilbúið að utan en Ívarsseli hefur verið pakkað inn í plast og unnið er að viðgerð á viðum hússins.

Við byrjum að vanda á spurningu dagsins og spyrjum um næststærsta skóglendi landsins. Hvað heitir það og hvar á landinu er það? Svæðið er nú í eigu Skógræktar ríkisins, hvenær komst það í hennar eigu og hver átti svæðið áður en það varð?

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku