Að detta í gegnum tímagat
Fyrst birt: 15.06.2012 18:30, Síðast uppfært: 18.06.2012 11:46

Það er eins og að detta 100 ár aftur í tímann að koma til Flateyjar á Breiðafirði, þarna stendur þorpið og það eina sem vantar eru skipin, fólkið og búðirnar sem þarna voru á blómatíma eyjarinnar. Heimsókn í Flatey á Flakkinu á morgun kl. 13:00.
Eftir siglingu með Baldri frá Stykkishólmi í Flatey er farið í gönguferð um eyjuna og sagt frá sögu og íbúum fyrr og nú í fylgd Guðmundar Stefánssonar landbúnaðarhagfræðings, sem á hlut í húsi í eynni. Hann segist aldrei fá nóg af veru þar, flestir sem þangað koma upplifa kyrrstöðu tímans í eynni. Heilsað upp á hótelstýrurnar Ingibjörgu og Ingunni. Þátturinn var áður á dagskrá 27. ágúst í fyrra.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














