Á elleftu stundu
Fyrst birt: 09.02.2012 17:30, Síðast uppfært: 09.02.2012 19:13

Loks samkomulag í Grikklandi um aðgerðir
Grísku stjórnarflokkarnir náðu nú síðdegis samkomulagi um aðgerðir sem þeir telja að dugi til þess að til að fullnægja þeim skilyrðum sem þríeykið Evrópusambandið, Seðlabanki Evrópu og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn setja fyrir því að reiða fram lán upp á hundrað og þrjátíu milljarða evra, sem samþykkt var seint á síðasta ári. Samkomualgið kemur á elleftu stundu hefði ekki náðst samkomulag hefði gríska ríkið komist í greiðsluþrot í næsta mánuði, og í framhaldinu líklega orðið að hverfa út úr evrusamstarfinu og Evrópusambandinu.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






