Á 100 ára afmæli Rudolf Firkušný
Fyrst birt: 10.02.2012 14:43, Síðast uppfært: 10.02.2012 14:43

Tékkneski píanóleikarinn Rudolf Firkušný var fæddur þann 11. febrúar árið 1912 og í tilefni 100 ára afmælis hans verða leiknar hljóðritanir með honum í þættinum "Bak við stjörnurnar" á mánudaginn kl. 14:03
Rudolf Firkušný kom m.a. hingað til lands í tvígang og lék með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Í síðara skiptið árið 1991 lék hann Píanókonsert í g moll eftir landa sinn Antonín Dvořák undir stjórn Petris Sakari og hljómar fyrsti þáttur þess konserts m.a. í þættinum í tónleikahljóðritun RÚV. Kynnir á þeim tónleikum var Már Magnússon og átti hann stutt viðtal við píanóleikarann Rögnvald Sigurjónsson og verður einnig leikið brot úr því viðtali.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






