Rannsókn á níðingsverkum í biðstöðu

Safnmynd.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir fáar vísbendingar hafa borist og eftir litlu að fara í rannsókn á níðingsverkum gegn hryssum í sumar og haust. Tveir voru boðaðir í viðtal en ekkert kom út úr þeim.

Rannsóknin er í biðstöðu í bili.

Á Egilsstöðum, í Skagafirði, Kjós og Kópavogi var með mánaðarmillibili skorið á snoppur og kynfæri á hryssum sem annað hvort voru í hagabeit eða í hesthúsi.

Lögreglan biður fólk að vera áfram vel á verði og hringja strax í neyðarlínu ef grunsemdir vakna.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku