Rannsókn á dauða hunds að ljúka

Rannsókn lögreglunnar á Vestfjörðum á dauða hunds sem fannst bundinn við hjólbarða í höfninni á Þingeyri er á lokastigi. Niðurstaða krufningar liggur fyrir en hræið af hundinum var sent til tilraunastöðvarinnar að Keldum til að skera úr um dánarorsök hans.

Málið vakti mikinn óhug á sínum tíma. Vegfarendur fundu hundinn á floti í höfninni og höfðu lappir hans verið bundnar saman og hann hengdur við tvö bíldekk. Sneri rannsókn lögreglu meðal annars að því hvort hundurinn hefði verið lifandi þegar honum var hent í sjóinn.

Samkvæmt lögreglunni á Vestfjörðum mun rannsókn málsins ljúka eftir nokkra daga og þá verður tekin ákvörðun um framhald málsins.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Vestfirðir

Tilkynna um bilaða upptöku