Rakel Dögg til liðs við Stjörnuna

Rakel Dögg leikur með Stjörnunni á næsta tímabili
Landsliðskonan í handknattleik Rakel Dögg Bragadóttir er gengin til liðs við uppeldisfélag sitt Stjörnuna og mun leika með liðinu á næsta tímabili.
Rakel lék síðast með norska úrvalsdeildarliðinu Levanger en ákvað að snúa heim úr atvinnumennsku eftir að hafa slitið krossband í hné skömmu fyrir heimsmeistaramótið sem fram fór í Brasilíu í desember. Vegna meiðslanna gat hún ekki tekið þátt í mótinu.
Rakel lék með Stjörnunni frá unga aldri og hefur unnið fjölda marga titla með fálaginu en hún varð Íslandsmeistari með félaginu árin 2007 og 2008. Hún hefur einnig komið að þjálfun yngri flokka félagsins með góðum árangri. Rakel var kosin íþróttamaður Stjörnunnar og Garðabæjar árið 2007 ásamt því að vera kjörin handboltakona ársins af HSÍ.
Í fréttatilkynningu frá stjórn handknattleiksdeildar Stjörnunnar segir að Rakel Dögg sé í endurhæfingu vegna meiðsla sinna sem gangi vel og allt bendi til þess að hún verði komin í leikform fyrir næstu leiktíð. Það sé mikill fengur fyrir félagið að endurheimta Rakel Dögg sem sé mikil keppnismanneskja en einnig góður liðsfélagi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






