Ragna Margrét í Val
Fyrst birt: 20.07.2012 13:39, Síðast uppfært: 20.07.2012 13:41
Flokkar: Körfubolti, Íþróttir

Mynd: valur.is.
Körfuknattleikskonan Ragna Margrét Brynjarsdóttir er gengin til liðs við Val. Ragna er 22 ára miðherji og spilaði síðasta tímabil í Svíþjóð með KFUM Sundsval Basket þar sem hún var með 6,3 stig að meðaltali í leik.
Ragna spilaði síðast á Íslandi 2010-2011 með Haukum þar sem hún var með tvöfalda tvennu að meðaltali í leik, 11,3 stig og 10 fráköst. Þá hefur hún unnið til fjölda meistaratitla bæði í yngri flokkum og meistaraflokki. Hún á að baki 51 landsleik fyrir hönd Íslands; 17 með A-landsliðinu, 25 með U16 og 9 leiki með U18.
Ágúst Björgvinsson, þjálfari meistaraflokks Vals, og Ragna eru að góðu kunn og hafa unnið mikið saman í gegn um tíðina.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













