Rafmagn komið á í Trékyllisvík

Mynd: Getty Images

Rafmagn komið á yfir Trékyllisheiði og til Djúpavíkur og í spennistöðina í Trékyllisvík, en rafmagn fór af Árneshreppi laust eftir klukkan hálf þrjú í dag. Ekkert rafmagn er þó frá spennistöðinni til Norðurfjarðar og Gjögurs.

Því er aðeins rafmagn í Djúpavík og á bænum Bæ og Finnbogastaðaskóla. Vitað er um brotinn staur við bæinn Mela. Ekki er reiknað með að komist neitt rafmagn á þessa bæi í kvöld. Vitlaust veður er á þessuim slóðum, norðan 21 m/s og snjókoma.

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Vestfirðir

Tilkynna um bilaða upptöku