Ráðningin ólögleg

Innanríkisráðuneytið hefur úrskurðað að ráðning í starf félagsmálastjóra Sandgerðis, Garðs og Voga sé ólögleg. Gengið var formlega frá ráðningunni í sveitarstjórn Sandgerðisbæjar í júlí 2010.

Einn umsækjenda kærði ráðninguna, þar sem hann taldi meðal annars að hann hefði ekki setið við sama borð og aðrir umsækjendur. Ráðuneytið tekur enga afstöðu til hæfis umsækjenda en gerir alvarlegar athugasemdir við ráðningarferlið. 

Megin athugasemd ráðuneytisins er sú að bæjarfélögin hafi í raun framselt ráðninguna og allt mat á umsækjendum til ráðningarþjónustu, sem fengin var til að meta hæfi umsækjenda.  Síðan hafi ráðningarþjónustan lagt til hver skyldi ráðinn. Sú tillaga hafi verið samþykkt í bæjarstjórn og bæjarráði.  Með þessu hafi bæjarstjórn afsalað sér þeirri ábyrgð sem á hana er lögð samkvæmt stjórnsýslulögum; að afla sér fullnægjandi
gagna, áður en ráðið var í starfið. Ráðningin var því úrskurðuð ólögmæt.



Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Atvinnulíf

Tilkynna um bilaða upptöku