Raðmorðingi kominn aftur á kreik?

Mynd: Nordic Photos/AFP.

Ótti við að raðmorðingi gangi laus hefur enn á ný gripið um sig á Long Island í Bandaríkjunum. Lögreglan þar segir að karlmaður sem var úti að ganga með hundinn sinn í skóglendi við bæinn Manorville hafi fundið beinagrind af manneskju.

Rannsóknardeild lögreglunnar rannsakar nú hvort morð hafi verið framið. Lík fjögurra vændiskvenna fundust á Long Island árið 2010. Í apríl í fyrra fundust fjögur lík til viðbótar, og ein beinagrind. Tíunda líkið fannst svo í desember síðastliðnum, og kom í ljós að það var af ungri vændiskonu frá New Jersey. Morðinginn er enn ófundinn.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku