Ráðherra virði jafnréttislög

Mynd: ÞO


  • Prenta
  • Senda frétt

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi umhverfisráðherra, og Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrrverandi borgarstjóri, segja að þá kröfu verði að vera hægt að gera til ráðherra að þeir skilji og virði jafnréttislöggjöfina. Dómgreindarbrestur hafi bakað forsætisráðuneytinu vandræði.

Undrandi á viðbrögðum

Þórunn og Steinunn, sem báðar eru fyrrverandi þingmenn Samfylkingarinnar, rita grein í Fréttablaðið í dag undir yfirskriftinni „Eiga konur ekki að kæra?“. Þar fjalla þær um úrskurð kærunefndar jafnréttismála, sem héraðsdómur hefur staðfest, um að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hafi brotið gegn jafnréttislögum með skipan karls í starf skrifstofustjóra. Þórunn og Steinunn eru harðorðar og furða sig á viðbrögðum bæði forsætisráðherra og fjármálaráðherra sem ritað hafi blaðagreinar til að verja ráðninguna.

Dapurleg stjórnsýsla

Þær segja að kona geri það ekki að gamni sínu að stíga fram og krefjast réttar síns gagnvart forsætisráðherra og gera verði þá kröfu til ráðherra í ríkisstjórn að þeir skilji og virði jafnréttislögin. Í greininni segir að dómgreindarbrestur og yfirlýsingagleði forsætisráðuneytisins hafi bakað því vandræði og slíkt beri stjórnsýslu ráðuneytisins dapurlegt vitni. Stjórnvaldinu beri að virða úrskurði og gera sannfærandi ráðstafanir til að slíkt endurtaki sig ekki. Að hlaupa í persónulega vörn og reyna að skaða trúverðugleika þess sem á var brotið sé tæplega liður í því.

Vilja ekki tjá sig

Jóhanna Sigurðardóttir hefur ekki viljað veita viðtal vegna málsins. Hún gaf út yfirlýsingu um helgina þar sem hún sagði að faglega hefði verið staðið að ráðningunni og undirbúningi hennar. Magnús Orri Schram, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, vildi ekki tjá sig um málið þegar leitast var eftir því í dag. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku