Rabarbaratónlist á Húsafelli

Páll með rabarbarahljóðfærið sitt.

Páll Guðmundsson, á Húsafelli, er þekktastur fyrir höggmyndir sínar en grjótið er honum ekki aðeins efniviður í myndlist heldur einnig í tónlist. Steinhörpur hans hafa vakið athygli víða um heim, meðal annars í meðförum Sigurrósar.

Páll hefur þróað hljóðfærasmíð sína enn frekar og það nýjasta úr hans smiðju eru rabarbarahljóðfæri, bæði slagverkshljóðfæri og blásturshljóðfæri.

Landinn fékk að líta inn í jarðhýsi Páls á Húsafelli

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku