Pútín sigrar í fyrstu umferð
Fyrst birt: 20.02.2012 12:09, Síðast uppfært: 20.02.2012 12:09

Vladimir Pútín, forsætisráðherra Rússlands. Mynd:AFP
Vladimir Pútín, forsætisráðherra Rússlands, sigrar í fyrstu umferð forsetakosninganna í Rússlandi 4. mars ef marka má nýja könnun sem gerð var í liðinni viku. Samkvæmt henni fær Pútín um 59 prósent atkvæða, en helming atkvæða þarf til að sigra í fyrstu umferð.
Gennady Zyuganov, leiðtogi Kommúnistaflokksins, fær 15 prósent og þjóðernissinnin Vladimir Zhirinovsky rúm níu prósent.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






