Postiga ekki með í undanúrslitum
Fyrst birt: 22.06.2012 13:29, Síðast uppfært: 22.06.2012 13:29

Úr leiknum í gær.
Framherjinn Helder Postiga leikur ekki með portúgalska liðinu í undanúrslitum EM í fótbolta.
Postiga meiddist í gær í leiknum gekk Tékkum og var borinn af velli á 39. mínútu. Læknir liðsins hefur staðfest að enginn möguleiki sé á að hann spili leikinn sem verður annað hvort gegn Spáni eða Frakklandi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is









