Tony Bennett syngur í Eldborg

Hinn eini sanni Tony Bennett sem skildi við hjarta sitt í San Fransisco fyrir áratugum og er enn að segja fólki frá því ætlar að syngja í Eldborgarsal Hörpu föstudagskvöldið 10. ágúst.
Tony Bennett hefur sungið fyrir fólk í meira en 60 ár, en á þeim tíma hefur hann meðal annars unnið til 17 Grammy-verðlauna, tveggja Emmy verðlauna og selt meira en 50 milljónir platna.
Tony vann enn og aftur til Grammy verðlauna síðastliðinn sunnudag, en Þá hlaut hann tvenn verðlaun. Nýja platan hans Duets II var valin besta popplata ársins og lagið Body and Soul sem Amy Winehouse söng með honum skömmu áður en hún lést var valið besti dúett ársins.
Dóttir hans Antonia Bennett mun koma með til landins og hita upp, og með Tony spilar jazzkvartett Tony Bennett. Tónleikarnir eru hluti af Evrópu-túr og Ísland er síðasti viðkomustaðurinn áður en hópurinn heldur heim til Bandaríkjanna.
Sena sem stendur fyrir tónleikunum segir í fréttatilkynningu að miðasala hefjist í byrjun mars og 1500 miðar verða í boði.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






