Spilaði í hléi hjá Hauki Morthens
Fyrst birt: 17.08.2012 14:45, Síðast uppfært: 17.08.2012 14:45
Flokkar: Poppland

Tónlistarmaðurinn Kristján Kristjánsson, betur þekktur sem KK, var í viðtali hjá þeim Óla Palla og Matta í Popplandinu í dag og hafði hann frá ýmsu að segja.
Kristján er búinn að vera á flakki í sumar en hann var m.a. með Andra Frey úti í Bandaríkjunum og Kanada við tökur á nýjum sjónvarpsþætti. Hann er þó ekkert að slappa af þessa dagana, en KK Bandið spilar á Tónaflóði, stórtónleikum Rásar 2 á Menningarnótt á laugardaginn. Þetta og ýmislegt fleira í viðtalinu sem hlusta má á hér fyrir ofan.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














