Seldist upp á Tull á 7 mínútum

Miðar á tónleika Jethro Tull, Ian Anderson í Hörpu þann 21. júní næstkomandi seldust upp á aðeins sjö mínútum en miðasala hófst á hádegi í dag. Í kjölfar þessara kröftugu viðbragða hefur verið samið um aukatónleika daginn eftir, 22. júní, og hófst sala á þá kl. 14 í dag í Hörpu og á midi.is
Á meðal efnis á tónleikunum í Hörpu í sumar er meistaraverkið Thick As A Brick en það hefur ekki verið flutt í heild sinni á sviði í fjóra áratugi eða frá því Jethro Tull gaf það út á plötu árið 1972. Fyrir nokkrum dögum var svo tilkynnt að þann 6. apríl væri von á framhaldi þess, Thick As A Brick 2, og verður hluti þess fluttur á tónleikum sveitarinnar. Hinir fjölmörgu aðdáendur Jethro Tull og Ian Anderson á Íslandi hafa því sannarlega margt til að gleðjast yfir.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






