Radiohead sem sinfónía

Stjórnandi Sinfóníuhljómveitar Lundúna, Steve Reich, hefur ákveðið að nota tvö gömul Radiohead lög í sinfóníuna Radio Rewrite sem hann mun flytja ásamt 13 manns úr sinfóníuhljómsveit sinni þann 5 mars nk.

Þetta eru lögin Everything In Its Right Prize af plötunni Kid A og Jigsaw Falling Into Place af plötunni In Rainbows. Radio Rewrite verður frumflutt á Southbank tónlistarhátíðinni í mars. Reich hitti meðlimi Radiohead í Póllandi í september og heyrði þar að Jonny Greenwood gítarleikari Radiohead hefði leikið eitt af verkum Steve Reich.

Radiohead eru þessa dagana að undirbúa heimstónleikaferð til að fylgja eftir The King Of Limbs.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Poppland

Tilkynna um bilaða upptöku