Obama söng Let's Stay Together

Netsala á Al Green laginu gamla góða, Let's Stay Together hefur aukist um næstum 500% á síðustu dögum eftir að Barack Obama forseti Bandaríkjanna söng nokkrar línur úr því á góðgerðarsamkomu í Apollo leikhúsinu í Harlem þann 19. janúar sl.

Let's Stay Together kom út árið 1971 en seldist í um 16.000 eintökum eftir söng Obama. Al Green sem söng lagið upphaflega var í salnum og sagði Obama "engar áhyggjur Al, ég get ekki sungið eins og þú". Hægt er að sjá myndband af söng Barack Obama hér, óhætt er að segja að forsetinn gæti snúið sér að söng verði hann ekki endurkjörinn forseti Bandaríkjana.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Poppland

Tilkynna um bilaða upptöku