Nýtt myndband frá Snorra Helgasyni

Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason sendir frá sér nýtt myndband við lag af plötunni Winter Sun sem kom út á síðasta ári hjá Kimi Records.

Myndbandið er við lagið Mockingbird og er leikstýrt af ítölsku myndlistarkonunni Elisu Vendramin sem búsett er hér á landi um þessar mundir. Myndbandið var frumsýnt á vef bandarísku útvarpsstöðvarinnar KEXP sem hefur veitt Snorra mikinn stuðning síðastliðna mánuði eftir að hafa séð hann ásamt hljómsveit sinni spila á Airwaves hátíðinni í Október sl. og fékk hann m.a. til að spila á Reykjavík Calling kvöldinu í Seattle í nóvember sl. ásamt Ólöfu Arnalds og þarlendum tónlistarmönnum.

Myndbandið er hægt að sjá hér.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Poppland

Tilkynna um bilaða upptöku