Nýjasta plata Beck á nótum

Bandaríski tónlistarmaðurinn Beck stefnir á að gefa út sína nýjustu plötu í formi nótna. Mun „hlustandinn“ því ekki hlusta beint á lögin, heldur spila þau sjálfur.
Platan Song Reader á að koma út í desember n.k. og samanstanda af tuttugu lögum sem eru ekki aðeins áður óútgefin, heldur óupptekin einnig. Verður platan alls 108 blaðsíður og hefur hvert laganna tuttugu sinn eigin bækling. Hugmyndin er sú að aðdáendur geti sjálfir spilað lögin og þar með glætt þau lífi á sinn eigin hátt.
Er þetta ekki í fyrsta skipti sem Beck fer sínar eigin leiðir í list sinni, en samkvæmt útgefanda Song Reader vill Beck með plötunni senda ákveðin skilaboð varðandi mikilvægi og gildi tónlistar. Aðdáendur Beck bíða líklega í ofvæni eftir nýju plötunni, þá ekki síst þeir sem geta lesið nótur.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














