Neil að taka upp með Crazy Horse

Neil Young er að taka upp nýja plötu með gamla bandinu sínu, Crazy Horse!
Þetta kemur fram á aðdáendavef Young sem heitir Thrasher´s Wheat og nú er Rolling Stone búið að fá þetta staðfest, en Young var um síðustu helgi á Slamdance kvikmyndahátíðinni í Park City í Utah, en þar var hann staddur ásamt kvikmyndagerðarmanninum Jonathan Demme sem hefur gert þrjár myndir um Young, og sú nýjasta, Journeys var einmitt sýnd á hátíðinni við gríðarlega góðar viðtökur.
Trommari Crazy Horse, Ralph Molina er líka búinn að staðfesta þetta á Facebook síðu sinni.
Young er búinn að spila með Crazy Horse, (sem stundum hefur verið kallað þriðja besta bílskúrsband í heimi) af og til síðan 1968 og á meðal platna sem hann hefur gert með sveitinni eru; Everybody Knows This Is Nowhere, Zuma, Rust Never Sleeps og Ragged Glory. Síðasta platan sem hann gerði með Crazy Horse er rokk-óperan skrýtna Greendale, en þar var gítarleikarinn Frank "Poncho" Sampedro reyndar ekki með. Hann var svo með túrnum sem farinn var til að fylgja plötunni eftir 2003 og 2004 og síðan hafa leiðir Young og Crazy Horse ekki legið saman.
Það þykja mikil gleðitíðindi í herbúðum aðdáenda Young að hann sé að gera plötu með Crazy Horse vegna þess að með Crazy Horse á hann helst heima finnst mörgum, og hann hefur ekki gert plötu með öllum liðsmönnum Crazy Horse síðan hann gerði Broken Arrow árið 1996. Reyndar tók hann upp plötu með sveitinni árið 2000 sem átti að heitaToast, en hún var sett ofan í skúffu eins og svo margar plötur Young í gegnum tíðina.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







