Melchior í Stúdíói 12 á bóndadag

Föstudaginn 20. janúar 2012, á sjálfan bóndadaginn, mætti hljómsveitin Melchior í Poppland á Rás 2 og flutti nokkur lög í Stúdíói 12.

Hér er ansi hreint þorralegt tóndæmi frá Hróðmari Sigurbjörnssyni, Hilmari Oddssyni, Karli Roth og Kristínu Jóhannsdóttur. Gestgjafi var Andrea Jónsdóttir, hljóðmeistari var Egill Jóhannsson, tökumenn voru Ólafur Jón Thoroddsen og Janus Bragi Jakobsson og sá síðastnefndi sá um myndbandssamsetninguna.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka