Leoncie í beinni

Hin eina eina sanna Indverska prinsessa, Leoncie tók lagið í Stúdíói 12 í Popplandi í dag við gríðargóðar viðtökur hlustenda.

Leoncie er hér á landinu í nokkra daga og kom sérstaklega til Íslands í gær í þeim tilgangi að skemmta Íslendingum með dansi og söng, en hún er með tónleika á Gauki á Stöng á morgun (laugardagskvöld). Það seldist upp á tónleikana og því var brugðið á það ráð að bæta við aukatónleikum á morgun klukkan 19.00. Húsið opnar 18.00. Dr. Spock hitar upp fyrir Indversku prinsessuna.

Hér má heyra og sjá flutning prinsessunnar á þriðja og síðasta laginu, Going Places. Ragnar Gunnarsson sá um hljóðblöndun. Janus Bragi Jakobsson og Ólafur Jón Thoroddsen sáu um myndatöku og samsetningu.

Ljósmyndin var tekin fyrr í dag þegar Leoncie tók lagið í Popplandi.

 

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka