Indverska prinsessan heillaði

Hin eina eina sanna Indverska prinssessa, Leoncie tók lagið í std. 12 í Popplandi í dag við gríðargóðar viðtökur hlustenda.

Leoncie er hér á landinu í nokkra daga og kom sérstaklega til Íslands í gær í þeim tilgangi að skemmta Íslendingum með dansi og söng, en hún er með tónleika á Gauki á Stöng á morgun (laugardagskvöld). Það seldist upp á tónleikana og því var brugðið á það ráð að bæta við aukatónleikum á morgun klukkan 19.00. Húsið opnar 18.00. Dr. Spock hitar upp fyrir Indversku prinsessuna.

Myndin var tekin fyrr í dag þegar Leoncie tók lagið í std. 12 í Popplandi á Rás 2.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Poppland, Tónlist

Tilkynna um bilaða upptöku