Í minningu Péturs poppara

Í tilefni af minningar- og afmælistónleikum Péturs Kristjánssonar komu nokkrir vinir hans og félagar í Stúdíó 12 föstudaginn 6. janúar í útvarpsþættinum Popplandi á Rás 2 og tóku nokkur vel valin lög og hér má sjá og heyra flutning þeirra á fyrstu tveimur lögunum.

Fram komu Bjartmar Guðlaugsson, Sigurgeir Sigmundsson, Davíð Sigurgeirsson, Elvar Örn Friðriksson, Ásmundur Jóhannsson, Ingvar Alfreðsson og María Helena Haraldsdóttir.

Bjartmar söng lagið 15 ára á föstu ásamt eiginkonu sinni Maríu Helenu og Elvar Örn söng What‘s Hidden There. Ragnar Gunnarsson sá um hljóðupptökuna en Janus Bragi Jakobsson og Ólafur Jón Thoroddsen stjórnuðu myndavélunum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku