Grafík í beinni á Rás 2
Fyrst birt: 29.11.2011 13:36, Síðast uppfært: 30.11.2011 08:33

Hljómsveitin Grafík flutti þrjú lög í beinni útsendingu í Stúdíó 12 í Efstaleiti í útvarpsþættinum Popplandi á Rás 2, föstudaginn 25. nóvember 2011 og hitaði upp fyrir útgáfu og frumsýningu á nýju safnplötunni og heimildarmyndinni Stansað, dansað, öskrað.
Helgi Björnsson söng, Rúnar Þórisson spilaði á gítar, Jakob Magnússon plokkaði bassa, Hrafn Thoroddsen spilaði á píanó og Egill Rafnsson sló taktinn. Ólafur Páll Gunnarsson spjallaði við hljómsveitarmeðlimi. Hljóðmeistari Rásar 2 var Georg Magnússon. Myndbandsupptökumenn voru Benedikt Ketilsson, Andri Viðarsson og Ásgeir Eyþórsson en um myndblöndun sá Janus Bragi Jakobsson.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






