Eberg með nýtt lag
Fyrst birt: 26.06.2012 11:21, Síðast uppfært: 26.06.2012 12:46

Tónlistarmaðurinn Einar Tönsberg, betur þekktur sem Eberg, hefur gefið út fyrstu smáskífuna af væntanlegri breiðskífu sinni, en lagið heitir Long Since I Have Felt This Good.
Eberg hefur áður gefið út þrjár sólóplötur og er auk þess annar helmingur dúettsins Feldberg. Hann gaf jafnframt út plötuna Numbers Game í samstarfi við Pétur Ben á síðasta ári.
Nýja lagið er fáanlegt til niðurhals í stafrænum plötubúðum frá og með deginum í dag (26. júní). Sjálfur segir Einar að um sé að ræða „nettan eyrnaorm sem skríði inn í heila og neiti að fara“.
Hægt er að hlusta á Long Since I Have Felt This Good hér fyrir neðan.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













