Dikta í Stúdíói 12
Fyrst birt: 12.12.2011 15:22, Síðast uppfært: 14.12.2011 17:50

Nonni kjuði og Matti Popplandspiltur
Hljómsveitin Dikta spilaði í beinni útsendingu í Stúdíói 12 í Efstaleiti í útvarpsþættinum Popplandi á Rás 2, föstudaginn 9. desember 2011.
Haukur Heiðar Hauksson söng og spilaði á gítar, Skúli Z. Gestsson spilaði á mandólín og píanó, Jón Bjarni Pétursson spilaði á gítar og Jón Þór Sigurðsson trommaði. Hér sjáum við og heyrum flutning þeirra á lögunum Goodbye og Hátíð í bæ.
Hljóðmeistari Rásar 2 var Egill Jóhannsson en um myndbandsupptöku og myndblöndun sá Janus Bragi Jakobsson.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






