Azealia Banks á Íslandi 6. júní

Azealia Banks heldur tónleika í Vodafone höllinni þann 6. júní nk.

Forsala aðgöngumiða hefst þann 3. febrúar nk. á midi.is

Azealia Banks er aðeins 20 ára gömul. Þrátt fyrir það hefur þessi stúlka frá Harlem fengið verðskuldaða athygli. Fyrsta platan hennar kemur út með vorinu en lagið 212 hefur slegið í gegn úti um allan heim. Azealia hóf ferilinn sem dansari og leikari en vakti fyrst athygli sem söngkona með laginu Seventeen fyrir 2 árum. Í kjölfarið var gefið út lagið L8R og síðan rómuð útgáfa hennar á Interpol laginu Slow Hands.

Það er því gríðarlegur fengur í komu Azealiu Banks til Íslands. Hún þykir hafa magnaða sviðsframkomu og þeir sem séð hafa myndbönd hennar eru algjörlega heillaðir. Þegar hún kom fram á Koko klúbbnum í London í desember ári ætlaði þakið hreinlega að fara af klúbbnum. Hún er á tónleikaferð um Bretland og er skemmst frá að segja að uppselt er á alla tónleika hennar.

Stjarna er fædd og við Íslendingar erum svo heppnir að vera með þeim fyrstu sem berja hana augum utan heimalandsins og Bretlands. Það má búast við hreint mögnuðum tónleikum í Vodafone höllinni í byrjun sumars!

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Poppland

Tilkynna um bilaða upptöku