A Band On Stage í beinni
Fyrst birt: 14.12.2011 20:50, Síðast uppfært: 15.12.2011 09:28

Hljómsveitin A Band On Stage spilaði þrjú lög í beinni útsendingu úr Stúdíói 12 í Popplandi á Rás 2, föstudaginn 2. desember 2011. Eitt jólalag, eitt glænýtt og eitt koverlag.
Sara Blandon söng, Ármann Guðmundsson spilaði á gítar og banjó, Guðrún Sóley Sigurðardóttir söng, spilaði á fiðlu og gítar og Loftur S. Loftsson plokkaði kontrabassa. Lögin voru Walking In The Air, Ég vil fara (eftir Guðrúnu við texta Davíðs frá Fagraskógi) og Famous Blue Raincoat. Matthías Már Magnússon tók á móti bandinu og Ingi Þór Ingibergsson sá um hljóðblöndun en Janus Bragi Jakobsson mundaði vídeóvélina.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku






