Meira rokk og ennþá meira ról
Fyrst birt: 25.11.2011 18:47, Síðast uppfært: 25.11.2011 23:05

Þéttir á velli og léttir í lund – Molly Hatchet á góðri stund.
Frankenstein gengur aftur í Plötuskápnum í kvöld en hlustendur geta verið pollrólegir því hér er aðeins um að ræða lagstúf með þessu heiti í flutningi Edgar Winter Band.
Sjálft skrímslið sefur enn. Í Plötuskápnum eru heldur engin tímamörk á lengd þeirra laga sem verða fyrir valinu. Þess njóta m.a. sveitir eins og Rush, Molly Hatchet, Deep Purple og fleiri. Síðasti klukkutíminn verður svo eins konar „happy hour“ þar sem áherslan er lögð á rokk og ról sem allir ættu að geta notið.
Umsjón: Sigurður Sverrisson.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
PlötuskápurinnTilkynna um bilaða upptöku






