Gunnlaugur Sigfússon mætir með Plötuskápinn í kvöld

Mike Stoller og Jerry Leiber

Það verður farið um víðan völl í Plötuskápnum í kvöld. Elsta lagið sem leikið verður er frá árinu 1953 en það yngsta frá því rétt fyrir 1980.

Leikin verður tónlist með flytjendum eins og The Pretty Things, The Animals, Family, Colosseum, Clash, Magazine, Arethu Franklin og Percy Sledge svo aðeins fáein nöfn séu upptalin. Þá verður Jerry Leibers lítillega minnst en hann lést í síðasta mánuði. Það verður sem sé mikið rokk í bland við „soul“ sem verður dregið út úr plötuskápnum í kvöld.

Umsjón: Gunnlaugur Sigfússon

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku