Glys- og lokkarokk í sviðsljósinu

Gróskumikið skeið glys- og lokkarokks (hair metal) á árunum 1980 - 1990 verður í sviðsljósinu í Plötuskápnum á Rás 2 í kvöld. Og af hverju heitir hljómsveit Ten Years After? Þeirri spurningu verður einnig svarað í þættinum.

Á meðal sveita sem gæla við hlustir áheyrenda í kvöld eru Guns'n'Roses, Tesla, Ratt, White Lion, Bon Jovi, Def Leppard, Europe, Mötley Crüe og Twister Sister svo einhver dæmi séu tínd til. Næsta víst má telja að upprifjun kvöldsins á gargandi gítarsólóum og tregafylltum kraftballöðum nægi hvergi til þess að gera þetta tímabil upp. Þá er bara að taka Glys- og lokkarokk 2 síðar.

Plötuskápurinn hefst kl. 19.30 í kvöld. Umsjónarmaður er Sigurður Sverrisson.

Lagalisti kvöldsins:
Into the arena - MICHAEL SCHENKER GROUP
Rime of the ancient mariner - IRON MAIDEN
The pinnacle - KANSAS
Down payment blues - AC/DC
Ballroom blitz - SWEET
Too fast for love - MÖTLEY CRÜE
We're not gonna take it - TWISTED SISTER
Talk dirty to me - POISON
Gypsy road - CINDERELLA
Cherokee - EUROPE
Let's get rocked - DEF LEPPARD
Paradise city - GUNS'N'ROSES
When the children cry - WHITE LION
Burning bridges - SLAUGHTER
Lay it down - RATT
Hang touch - TESLA
I remember you - SKID ROW
You give love a bad name - BON JOVI
Cum on feel the noise - QUIET RIOT
Conversio prelude - ARTCH
Dust my broom - ZZ TOP
Gimme all your lovin' - ZZ TOP
Whammer jammer - J GEILS BAND
Centerfold - J GEILS BAND
Turbo lover - JUDAS PRIEST
Jump - VAN HALEN
I'm going home - TEN YEARS AFTER
Rock and roll band - BOSTON
Heartbreak hotel - ELVIS PRESLEY
Don't stop believing - JOURNEY
Free wheeling' - BACHMAN TURNER OVERDRIVE

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku