Stick Around For Joy

Plata dagsins er Stick Around For Joy og er hún síðasta útgefna stúdíóplata Sykurmolanna. Platan var sú þriðja sem bandið gaf út og kom hún sveitinni á toppinn í Bretlandi og Bandaríkjunum með laginu Hit. Nú 3.febrúar eru tuttugu ár síðan platan var gefin út.

Sykurmolarnir voru stofnaðir árið 1986, með Björk Guðmundsdóttur í fararbroddi sem söngkonu sveitarinnar. Ekki leið á löngu þar til sveitin var komin til Bretlands með ágætis plötusamning hjá plötufyrirtækinu One Little Indian og gáfu þau út sína fyrstu plötu Life‘s Too Good árið 1988.  

Sykurmolarnir hættu eftir sex ára samstarf, 1992, þegar Björk ákvað að einbeita sér að sólóferli sínum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Plata dagsins

Tilkynna um bilaða upptöku