Celebration Rock



  • Prenta
  • Senda frétt

Kanadíska hljómsveitin Japandroids heldur tónleika á Gamla Gauknum í kvöld og í tilefni þess er nýjasta plata sveitarinnar, Celebration Rock, plata dagsins.

Rokkdúettinn Japandroids var stofnaður í Vancouver í Kanada árið 2006 og samanstendur af þeim Brian King og David Prowse. Þeirra fyrsta plata, Post-Nothing, kom út árið 2009 og hækkaði frægðarsól sveitarinnar svo um munaði, en fyrir útgáfuna munaði minnstu að sveitin hefði hætt starfsemi. Kanadíska tónlistartímaritið Exclaim! valdi Post-Nothing næst bestu plötu ársins 2009 en auk þess var hún tilnefnd til kanadísku Polaris og Juno verðlaunanna. Plötunni var einnig vel tekið utan heimalandsins og komst hún víða á lista yfir bestu plötur ársins, hjá t.d. Pitchfork, Spin, NME og fleirum.

Önnur hljóðversplata Japandroids heitir Celebration Rock en hún kom út fyrr í sumar. Líkt og fyrirrennara hennar, þá hefur Celebration Rock verið gríðarleg vel tekið. Eru margir gagnrýnendur á þeirri skoðun að hún sé jafnvel betri en Post-Nothing, og segi það ýmislegt um gæði plötunnar.

Japandroids er þekkt fyrir kraftmikinn og skemmtilegan flutning á tónleikum og eiga gestir á Gauknum í kvöld því líklegast von á góðu.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku